Notabene

notabene!

29.04.2008 20:33:44 / Vilborg

Í dag er á morgun í gær!

þessi síða hefur greinilega ekki alveg verið að gera sig..:$
en nú er alla vega komið að því..tíminn þar sem manni er sama hvort lappirnar séu órakaðar, augabrúnirnar óplokkaðar, hárið í rúst, kozý föt eru málið og baugar langt niður á kinnar!
Já ég er að tala um það að lokaprófin eru að hefjast..bara ekki degi seinna en á morgun:S
en þá kemur það akkurat að þetta er einmitt tíminn til þess að gefa sér sma tíma til að vafra um á netinu og skrifa nýtt blogg...bara allt til þess að fá smá frí frá lærdómnum.
Stressið var svona farið að segja til sín þegar líða tók á apríl..en ég er ekki frá því að stressið sé bara farið:) Ég er búin að liggja yfir jarðfræðinni núna í 4 daga held ég og ég er bara ekki frá því að ég sé komin með smá pínu mikinn leiða á þessu blessaða efni! Hverjum er ekki sama hvar liggja sprungureinar á landinu og hvernig kvika kemur upp í hvaða eldgosi..mér er alla vega nett sama um það því ég efast um að það muni nýtast mér mikið í framtíðinni.
mig langaði bara að rita niður þessi orð áður en ég hefðist handa við lærdóminn að nýju og minna á það hversu gaman er að vera til á þessu leiðinlega tíma ársins..en ef maður hugsar út í þetta þá eru þetta næst síðustu vorpróf sem ég mun taka í Verzló:)..eða ég rétt vona það alla vega:D

gangi ykkur vel að læra stelpur mínar:)
Kv.Vilborg


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 12:43:20 / alexandra

SÁLIN!!!



Í KVÖLD ÚÚJE!!  ég held að ég muni bara deyja úr spenningi áður :D og svo er ég að fara eftir 20 mín í klippingu og litun og verð blondie aftur :D og svo er auðvitað komið páskafrí!! og ég ætla bara að liggja í leti allan tímann :) þetta er alveg yndislegur dagur =)

En er svo ekki pool á morgun? endilega commenta stúlkur :)

Alexandra :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 10:46:52 / alexandra

Forritunarkeppni!

Jæja þá er bara komin föstudagur eða litli laugardagur eins og sumir segja =) .. ég verð í forritunarkeppni framhaldsskóla allan daginn á morgun! uúújee úbersvalt sko =) ætla mér feitast að vinna þar sem verðlaunin eru skólagjöld í HR..nei ég ætla reyndar ekkert reyna neitt svaka mikið á mig
svo ætlum og signý að horfa á gettu betur í kvöld ef fólk vill joina..annars langaði mig nú bara aðeins að bæta við blogg hérna þar sem sumir eru ekki að standa sig nógu vel *hóst* ..annars ætla ég bara að óska helgu góðs gengis í hestakeppninni..( veit ekki alveg hvað þetta allt kallast) eeeen ég þarf að fara að æfa mig að forrita ..haha =)

Alexandra

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 16:50:56 / Vilborg

Ok stelpur þetta gengur ekki!

Góðan og blessaðan daginn:D..
sjæsinn8| hvað er langt síðan það var bloggað á þessa síðu!!..ekki nógu og gott:P..það er meira að segja svo langt síðan að ég skráði mig inná hana að ég þurfti nokkrar tilraunir til að gera rétt notendanafn og lykilorð!!
en já ég get alla vega sagt að ég sé í góðu skapi...launaseðilinn var að koma og ég get svo sannarlega ekki kvartað:D..nú á ég fullt af pening til að eyða í Berlín og Kraká í mars:D:D..
hef nú svo sem ekki mikið að segja..langaði bara svona aðeins að lífga upp á þessa síðu:P..og ég nenni ekki að klára ritgerðina mina í jarðfræði þannig ég ákvað að drepa tímann aðeins:D

-Vilborg


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 22:24:05 / alexandra

Portúgal 7.ágúst til 14 ??

Jæja jæja stelpur er portúgal ekki málið... Við getum fengið herbergi með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum á bara 63.000 kall :) á

Paraiso de Albufeira! :)

Ströndin :)

Sundlaugin

Stofan

Og svo svefnherbergið :)

Svo er náttlega áfengisverslun og 2 barir bara á hótelinu, ókeypis strætóferðir á ströndina og niðrí bæ og fullt af skemmtistöðum nálægt :)

"Á neðri hluta Laugavegarins eru margir góðir barir, dansstaðir, veitingastaðir og verslanir. Diskótekið Kiss er opið langt fram eftir nóttu, fyrir þá sem vilja kanna næturlífið enn betur."

Meðalhitinn í ágúst er 28° og bjórinn er á 70 kall

Mér líst allavega heavy vel á þetta...Er ekki bara málið að fara að panta :)

Alexandra

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 22:13:48 / Þorgerður

2008

GLEÐILEGT ÁR STELPUR!

 

TAKK ÆÐISLEGA FYRIR GAMLA ÁRIÐ SEM ER BÚIÐ AÐ VERA FRÁBÆRT!!!

 

NENNI EKKI AÐ KOMA MEÐ FULLT AF MYNDUM INN...

 

 ÉG VEIT AÐ EIN MYND SEGIR MEIRA EN ÞÚSUND ORÐ.

 

EN Í STAÐINN ÆTLA ÉG AÐEINS AÐ KOMA MEÐ SMÁ MINNISPUNKTA:

 

  • NEMÓ 2007 !!! [ÁSTA= WILD ASS TIGER]
  • PEYSUFATADAGURINN !
  • AFMÆLIÐ HENNAR ALEXÖNDRU
  • KVEÐJUPARTÝIÐ HENNAR ÁSTU
  • PIZZA HUT og klúbburin !
  • BUSABALLIÐ
  • BÚSTAÐAFERÐIN
  • DALVÍKURFERÐIN
  • ALLAR KRINGLUFERÐIRNAR
  • og öll góðu mómentin sem við áttum saman

gæti talið miklu meira upp en þetta er nóg í bili.

Gleðilegt  ár enn á ný og hafið það gott það sem eftir er jólafrísins! Sé ykkur svo hressar á mánudaginn!!! 8):D

 

Loves from the north

Þorgerður 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 20:14:22 / Vilborg

Já sææll!!!

Góðan daginn! ..eru þetta gjafir?..má bjóða þér skiptimiða?..þá er þetta 5.879 kr...takk fyrir..takk sömuleiðis og gleðileg jól!

já gæti þetta verið leiðinlegra?!?..en alla vega alveg aldir síðanég hef bloggað..ætli maður verði ekki að fara að bæta það aðeins:)..

nú fer að styttast í áramótin og ég þarfnast þess að komast á gott djamm..þannig að ef þið stelpur mínar eruð til í að djamma með mér um áramótin þá megiði alveg endilega bjalla í mig!..ég er búin að vera að vinna 9-22 alla dagana fyrir jól og ég þarf að komast aðeins út á lífið!!..svo er ég líka komin með nýja myndavél...loksins þannig ég farið að taka myndir til að bæta aðeins inn á þess blessuðu síðu!

svo ætla ég bara að segja gleðileg jól og vonandi höfðu allir það gott um jólin:)..

ætla bara að hafa þetta stutt og laggott í þetta skiptið..ætlaði bara að láta vita að ég er enn á lífi þó þið hafið kannski ekki heyrt mikið í mér upp á síðkastið:)..og svo líka þær sem ekki fengu jólakortið frá mér..þá er það ennþá heima og þið fáið það næst þegar við hittumst;)

kv.Vilborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 10:47:53 / Þorgerður

Í tilefni betri frammistöðu...

... hef ég ákveðið að koma með mína fyrstu bloggfærslu í svona um það bil þrjá mánuði.

Já ég er hérna á Dalvík talandi úr borg óttans (NOT) , neeei borg snjósins & jólaljósanna. Eða meira svona smábæ. Allavega..

Prófin búin. Miserfið. Mér fannst þetta prófadæmi samt miklu erfiðara en nokkurn tímann áður. Sérstaklega stæ & líf. Einkunnirnar koma svo í hús innan viku. Það verður eitthvað skrautlegt.

Í dag er 14.des sem þýðir að við erum allar komnar í laaaangþráð jólafrí :D  yuhuu! Í tilefni prófloka eru margir sem ákveða að skella sér á svokallað próflokadjamm sem þýðir það að maður verður blindfullur & djammar & dansar af sér rassgatið. Ég treysti því að þið munið gera það þarna fyrir sunnan...

Ég er að allavega spá í að skella mér í Sjallann á laugardaginn :lol: OG svei mér þá ef ég skelli mér ekki bara í leikhús í kvöld!  

 Annars.. þá verð ég að segja að mér finnst tíminn líða sjúklega hratt. Sko sickly fast. Mér finnst eins og það hafi bara verið í gær þegar við vorum að byrja haustönnina og fórum í kveðjupartýið hjá henni elsku Ástu Ítalíufarans okkar! Good times... :) 

Ég er svo að reyna að finna út hvað ég á að gera af mér í dag. Þar sem það eru einungis 10 dagar í aðfangadag og ég aðeins búin að kaupa 1 jólagjöf held ég að það yrði ráðlegt að ég færi nú að drífa í því svona bráðum. Og skrifa jólakort. OMG . Jii ..  jeg elsker julen :D

Er reyndar ekki komin með vinnu um jólin (STEIK.is) þar sem Sparisjóðurinn verður eitthvað takmarkað opinn & fólkið greinilega ekki á því að fara í jólafrí eða eitthvað.. sem þýðir að ég verð að taka að mér svona smávægileg verk... þjálfa sundið fyrir mömmu í .. moka skítinn eftir hestana fyrir pabba og svona skemmtilegt. HAH svo ráðlagði mamma mér að hengja upp auglýsingu á Kaupfélagið (búðina hérna á Dalvík) og auglýsa hvort fólk vantaði einhvern til  "ÞRIFA Í HEIMAHÚSUM". Séns í helvíti hahaha... :P ÉG held ekki að ég sé rétta manneskjan í það.

Neeei... en þetta reddast allt. Svo er mín að fara í klippingu á fimmtudaginn! Jii hlakka svo til :)

 Allavega. Segi þetta gott held ég bara! Og farið þið svo varlega í djammið um helgina dömur!
Hafið það gott skvísur...
Loves from Dalvík,

Þorgerður Jóhanna 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 13:20:07 / alexandra

Betri frammistöðu takk fyrir!!

Þetta er nú lélegt stelpur! ég veit að það eru próf og allt en come on sko...seinasta bloggið var 20. nóvemeber! hmm ég er ekki nógu sátt vill sjá betri frammistöðu :)

EEEn allavega núna eru þessi próf loksins að fara að verða búin..eða allavega fyrir ykkur ég á náttlega 2 próf eftir ugh... En svo er ég búin á föstudaginn :D og mig langar að heyra hvað þið eruð að plana.. ég ætla allavega að djamma feitt :haha: 

Endilega commentið með smá plön.. ég veit að Signý ætla að djamma á laugardaginn allavega ..spurning að gera kannski eitthvað saman þá? :) 

 

Hehe ég googlaði próf og fékk þessa skemmtilegu mynd :haha: datt í hug að þið mynduð hafa gaman af henni ;)

 

 

 

Og svo eru jólin að koma eftir 2 vikur :o  þetta er alveg svakalegt hvað þau læddust upp að mér :)

Annars sé ég ykkur bara hressar og kátar á miðvikudaginn í eðlisfræðiprófinu :) 

Alexandra 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 18:23:05 / Signý

loksins loksins

jæja það hefur einhver verið að kvarta undan bloggleysi svo ég ætla að skrifa hér smá blogg!!

Vil byrja á því að ég hata að bíða!!!!!!!!

Fyrst þetta er komið fram get ég haldið áfram. Ég hélt upp á afmælið mitt á föstudaginn, veit það er pínu snemmt en næsta helgi hentar ekki og svo erum við bara byrjuð í prófum helgina þar á eftir svo....Ég fékk að halda smá partý. Var samt eiginlega stelpupartý þar sem kiddi og trausti voru einu strákarnir sem komust og jú jói kæróinn hennar elísu! Fékk fullt af frábærum gjöfum, takk takk, þar á meðal var kynlífsspil og silvurlitar nærbuxur!! sumir fóru í partý neðar í götunni, aðrir ætluðu á klúbbinn en hinir fóru heim til sín þegar afmælið var búið. Ég fór að sofa!

Prófin eru eftir 2 vikur shit!! er að vera stressuð hérna. meika ekki að fara í efnafræði og eðlisfræði ... hitt reddast ;)

myndir úr afmælinu koma um leið og ég fæ þær hjá helgu ásamt tölvunni hennar og bílnum :P;)

 nenni þessu ekki lengur!

bæ Signý 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 11:34:21 / Ásta María

Italian talar

Hvar er bloggid stelpur?

Profin eru bradum ad byrja og ta er adal bloggtimi arsins!

Koma svo!

Segid fra tvi hvad tid erud ad gera i skolanum to tad se bara mega edlilegt. Sakna edlilegsskolalifs!

Knus og kossar til allra i ESS-inu


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 13:41:17 / alexandra

fólublár flauelsgalli rarr!

Núna er sko alveg komin tími á blogg.. í gær var brjálað stuð :) við stelpurnar byrjuðum á pizza hut þar sem bekkjabróðir þeirra stelpnanna var að vinna og afgreiddi hann okkur ..einkar skemmtilegt :) gerðum okkur nú að smá fíflum þar held ég :lol: ég og Vilborg fengum liti og litabók og bara colored our asses of sko! :D ( mín mynd var samt miklu betri skomm) og svo var tekinn smá rúntur, mikið sungið og stuð svo skiluðum við bílnum mínum því ég ætlaði nú kannski að fá mér smá í glas um kvöldið:) sem ég svo gerði :D og náðum í bílinn hennar Þorgerður og tókum stefnuna á klúbbinn eeeen því miður var signý aðeins of lítil og komst ekki inn ;) en það er allt í lagi hún verður stór eftir mánuð :) en svo þegar inn var komið sátum við og spjölluðum ég drakk smá bjór, vilborg reyndi að drekka smá bjór en gafst upp eftir tvo sopa :lol: og svo var farið í pool þar sem að ég held að mest nasty gaur ever starði á okkur, þetta var svona fertugur maður í fjólubláum flauelsgalla með leopard kraga og auðvitað hatt í stíl og svona aðeins i feitari kantinum! 8| og til að toppa það var hann með sólgleraugu sem hann notaði til að stara mjög stíft á okkur og hélt örugglega að við tækjum ekkert eftir því :D en svo var dansað og það var svo gaman að við gátum bara ekki slitið okkur frá dansgólfinu :D alveg ofboðslega skemmtilegur dj :) ætluðum alltaf að dansa bara eitt lag í viðbót sem endaði á að vera svona 20 lög örugglega :D

 

en ég tók nokkrar myndir á símann minn og ætla að skella þeim hérna inn:D

 

 

Helga úbersexy :)

 

og Vilborg í pool :)

 

og Þorgerður :D

 

og versti pool leikur spilaður!! :D

 

og svo Helga og ég :)

Þá er það komið :) 

Svo er ég að fara á Halloween ball í kvöld..endilega kíkið á organ ef ykkur langar að sjá mig í búning :D

En þetta var bara geggjað gaman stelpur, takk fyrur kvöldið :haha:

Svo koma nokkrar myndir frá fótboltaleiknum þarna um daginn :)

 

 

kannski pínu pointless mynd en hvaa :D

 

Alexandra :haha:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 17:33:08 / Signý

VETRARFRÍ

Víííííí það er komið vetrarfrí:D:D

ég sit hér og bíð eftir því að helga ásamt þorgerði og vilborgu komi og sæki mig!! Við erum jú á leið í bústað með bekknum. Bústaðurinn er eitthverstaðar á Snæfellsnesi. Á morgun fer vilborg heim því hún þarf að vinna en ég helga og þorgerður höldum áfram norður á Dalvík, ég og helga ætlum að hæmsækja heimabæ Þorgerðar:D verðum þar fram á laugardag og svo höldum við heim á leið og klárum þetta belssaða vetrarfrí heima:D:D Hlakka ekkert smá til :D

En segi þetta gott í bili og lofa að taka fullt fullt af myndum annaðhvort á mína vél eða eitthvers annars!!

Sjáumst
Signý:D:D - komin í vetrarfrí:D:D:D::D


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 09:30:51 / Signý

18 ára

Í dag 12. okt á hún Vilborg afmæli

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ

 

Kveðja notabene!!!

Ýmislegt 235


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 14:27:06 / Helga Björt

Blogg... right?!

Einhver talaði um að við ættum að vera duglegar við að blogga hérna þannig að svona uppá samviskuna þá ákvað ég að henda inn einu hérna8)

Ég er núna í Florida... var að koma úr sólbaði hérna við sundlaugina in our backyard í húsinu okkar! Hugsa um að skella mér í mollið8) reyndar búin að kaupa ansi mikið af fötum og skóm en aldrei nóg af því;):P búin að vera hérna í viku og mun vera hérna í 3 vikur í viðbót:D!! Á morgun ætlum við í Wet'n Wild! sjæsee það verður svo gaman...:haha:! í gær fórum við á Stake'n Shake og fengum okkur að borða... bestu shake-ar sem hægt er að fá þarna!;) í morgun fórum við síðan og fengum okkur fimm hæðir af pönnukökum með sýrópi og síðan egg og beikon! úff... life is wonderful!! *hóst* verst að ekkert af þessu er satt:$!!

Nei ég ligg veik heima fyrir framan sjónvarpið og skólinn og bækurnar bíða mín! AAA!! en svo kemur bráðum vetrarfrí:D:D vúhú... og þá ætla ég að taka herbergið mitt í gegn og örugglega fara með stelpunum til Dalvíkur... ekki nema það sé ekki ennþá á dagskrá:$?! en ef Dalvík er ekki á dagskrá þá er búið að bjóða mér í sumarbústað þannig að ég hef plan B!;)

Mest af öllu hlakka ég til að fá mér fylltar lakkrísreimar og trítla:D!! vonandi að ég geti bráðum borðað það:D!!

og svo náttúrlega get ég ekki beðið eftir næsta laugardegi... Vilborg;)!! mátt ekki beila:!::P læt eins og ég hafi aldrei farið í afmæli áður:P hehe...! Kannski ég hafi aldrei farið í afmæli áður:$?!

 

Bæbæ, Helga Björt:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Danm�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1762 dögum